Sagan
Eigendur Osushi eru systkinin Anna og Kristján Þorsteinsbörn.
Hugmyndin að staðnum kviknaði þegar Kristján var á ferðalagi um Ástralínu þá kynntist hann sushi menningunni og sótti mikið svokallaða færibandastaði.
Þannig var grunnurinn lagður að því að opna slíkan veitingastað heima á Íslandi. Kristján, í félagi við aðra, lét drauminn rætast og opnaði sinn fyrsta sushi veitingastað í Lækjargötu 2a í byrjun desember árið 2005.
Í júní 2006 keypti Anna systir félaga Kristjáns út úr fyrirtækinu og þar með áttu þau systkinin Osushi saman.
Í september 2008 færðu systkinin út kvíarnar og opnuðu nýjan Osushi stað í sjálfu viðskiptahverfinu í Borgartúni.
Í janúar árið 2012 var staðnum í Lækjargötu lokað og nýr og stærri Osushi-staður var opnaður í Pósthússtræti.