Þjónusta

Við höfum verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa einstaklega liðlegt og hresst starfsfólk á okkar vegum allt frá upphafi.

Fólkið okkar kemur frá ýmsum framandi þjóðlöndum eins og Víetnam og Filipseyjum – að ógleymdu Íslandi.

Eitt af því sem einkennir Osushi staðina er þjónustan sem er bæði hröð og lipur. Viðskiptavinir okkar kunna vel að meta þann kost að geta sest við færibandið.