Fréttir
27.01.12
Pósthússtræti 13
Pósthússtræti 13...

Osushi í Pósthússtræti 13 er staðsettur í hjarta miðborgarinnar við hliðina á Hótel Borg við Austurvöll. Þar er m.a. boðið upp á mikið úrval af maki, nigiri, misosúpu, sticks og eftirréttum. Meðal vinsælustu bita eru djúpsteiktir makibitar, volcano og maki tempura. Einnig er laxa sashimi, tuna sashimi og laxa og tuna tartar mjög vinsæl.

Hér getum við tekið á móti allt að 50 manns í sæti.

Einnig hefur staðurinn upp á að bjóða svokallað ,,lounge´´þar sem getur verið notalegt að fá sér drykk fyrir mat eða á eftir. Eða bara til að tylla sér meðan beðið er eftir Take away!

Með hækkandi sól stækkar Osushi því þá gefst gestum tækifæri til þess að sitja úti og njóta veðurblíðunnar. 

 

 

Opnunartímar

  • Opið er alla virka daga frá kl. 11:30-22:00
  • Föstudaga og laugardaga er opið til kl. 23:00.
  • Sunnudagar er opið frá kl. 15.00- 22.00
  • Eldhúsið lokar ávallt hálftíma fyrir auglýstan lokunartíma.